Velkomin á heimasíðu félags stjórnsýslufræðinga

Samstarfssamningur við Endurmenntun

Félag stjórnsýslufræðinga og Endurmenntun Háskóla Íslands hafa gert með sér tveggja ára samstarfssamning.

Markmiðið með samningnum er að auka samstarf og standa að sameiginlegum námskeiðum að lágmarki tvisvar á ári. Félagsmenn í Félagi stjórnsýslufræðinga hljóta þá afslátt af sameiginlegum námskeiðum. Einnig býður Endurmenntun félagsmönnum valin námskeið úr framboði sínu með sérstökum afsláttarkjörum.

Á næstu vikum verður gerð fræðslukönnun meðal félagsmanna. Markmið könnunarinnar er að auðvelda félaginu og Endurmenntun að koma auga á fræðsluþarfir félagsmanna.

Líta má á þennan samning sem nokkur tímamót í sögu félagsins og við hlökkum til samstarfs við Endumenntun.

Sjá frétt um málið hjá Endumenntun.

 

Nýr tengill ,,Greinar"

Nýr tengill ,,Greinar"

Vakin er athygli á nýjum tengli hér á heimasíðunni; Greinar. Fyrsta greinin er kominn inn og nefnist hún Hvað eru stjórnsýslufræði? Félagsmenn jafnt sem aðrir áhugamenn um opinbera stjórnsýslu eru hvattir til þess að senda inn greinar um hugðarefni sín til birtingar á vefnum.

Síðast uppfært ( Sunnudagur, 22. janúar 2012 11:58 )

 

<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL