Fréttir
Umsagnir um lagafrumvörp
Stjórn félagsins óskaði nýlega eftir því við Alþingi að fá að veita umsagnir um þau lagafrumvörp sem varða stjórnsýsluna. Erindinu var vel tekið og nú fáum við tilkynningar um einstök frumvörp á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Stjórnin hefur jafnframt rætt þann möguleika að stofna um þetta faghópa, t.d. með þátttöku lögfræðinga og ýmissa sérfræðinga á sviði einstakra stjórnsýslumála.
Hugmyndin er að reyna að koma með ábendingar um fagleg mál en sneiða frekar hjá hápólitískum málum. Áhugavert væri að heyra frá félagsmönnum hvaða möguleika þeir sjá í tengslum við þessa tilraun. |
Afsláttur af námskeiðum hjá Endurmenntun vor 2012Félagsmönnum í Félagi stjórnsýslufræðinga standa nú til boða nokkur námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands með 15% afslætti. Mikilvægt er að taka fram í athugasemdareit við skráningu að viðkomandi sé félagsmaður. Námskeiðin eru:
Samstarfssamningur við EndurmenntunFélag stjórnsýslufræðinga og Endurmenntun Háskóla Íslands hafa gert með sér tveggja ára samstarfssamning. Markmiðið með samningnum er að auka samstarf og standa að sameiginlegum námskeiðum að lágmarki tvisvar á ári. Félagsmenn í Félagi stjórnsýslufræðinga hljóta þá afslátt af sameiginlegum námskeiðum. Einnig býður Endurmenntun félagsmönnum valin námskeið úr framboði sínu með sérstökum afsláttarkjörum. Á næstu vikum verður gerð fræðslukönnun meðal félagsmanna. Markmið könnunarinnar er að auðvelda félaginu og Endurmenntun að koma auga á fræðsluþarfir félagsmanna. Líta má á þennan samning sem nokkur tímamót í sögu félagsins og við hlökkum til samstarfs við Endumenntun. Nýr tengill ,,Greinar"Nýr tengill ,,Greinar" Vakin er athygli á nýjum tengli hér á heimasíðunni; Greinar. Fyrsta greinin er kominn inn og nefnist hún Hvað eru stjórnsýslufræði? Félagsmenn jafnt sem aðrir áhugamenn um opinbera stjórnsýslu eru hvattir til þess að senda inn greinar um hugðarefni sín til birtingar á vefnum. Síðast uppfært ( Sunnudagur, 22. janúar 2012 11:58 ) Félagið á LinkedInUm leið og stjórn félagsins óskar félagsmönnum gleðilegs nýs árs, tilkynnir hún fyrstu nýjung ársins, sem er þessi: Stofnaður hefur verið hópur á vegum Félags stjórnsýslufræðinga á samskiptavefnum LinkedIn. Markmið með stofnun hópsins eru: Að ná til þeirra stjórnsýslufræðinga sem nýta sér LinkedIn Að vera vettvangur fyrir umræður og upplýsingar sem tengjast faginu Stjórn félagsins lítur (fyrst um sinn) á þetta sem tilraun og hvetur félagsmenn til þess að taka þátt í henni með því að skrá sig í hópinn. Umsjón með þessu verkefni hefur Kristinn Valdimarsson: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Vinsamlegast snúið ykkur til hans með spurningar og ábendingar. Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 10. janúar 2012 00:07 ) |



