Málstofa 15. des. um nýsköpun í opinberum rekstri
Næsta málstofa Félags stjórnsýslufræðinga og stjórnsýsluhóps Dokkunar verður haldin núna á fimmtudag, 15. desember, kl. 9-10 í Odda (HÍ) stofu 106.
Umfjöllunarefnið er nýsköpun í opinberum rekstri.
Fjármálaráðuneytið, Félag forstöðumanna ríkisstofnanna, Stofnun stjórnsýslufræða, Rannís og Nýsköpunarmiðstöðin tóku höndum saman í sumar um að vekja athygli á nýsköpun í opinberum rekstri. Þann 3. nóvember sl. héldu þessir aðilar ráðstefnu um þetta mál og þar voru einnig afhent verðlaun fyrir bestu nýsköpun í opinberum rekstri á árinu 2011. Í ágúst sl. sendi fjármálaráðuneytið bréf til allra forstöðumanna stofnana og óskaði eftir tilnefningum til nýsköpunarverðlaunanna. Alla bárust 40 verkefni frá 28 stofnunum.
Á málstofunni kynna fulltrúar Stofnunnar stjórnsýslufræða, Ásta Möller og Hrefna Ástmarsdóttir, þetta verkefni, aðdraganda, nýsköpunarverðlaunin og nýja heimasíðu um nýsköpun í opinberum rekstri, www.nyskopunarvefur.is fyrir fundarmönnum.
Fyrirvarinn er vissulega skammur, en við vonum að það komi ekki að sök.
Athugið að best er að skrá sig á fundinn í Dokkunni.
Síðast uppfært ( Mánudagur, 12. desember 2011 18:37 )


