Félagið á LinkedIn
Um leið og stjórn félagsins óskar félagsmönnum gleðilegs nýs árs, tilkynnir hún fyrstu nýjung ársins, sem er þessi:
Stofnaður hefur verið hópur á vegum Félags stjórnsýslufræðinga á samskiptavefnum LinkedIn.
Markmið með stofnun hópsins eru:
Að veita félagsmönnum upplýsingar um nám og störf annarra stjórnsýslufræðinga
Að ná til þeirra stjórnsýslufræðinga sem nýta sér LinkedIn
Að vera vettvangur fyrir umræður og upplýsingar sem tengjast faginu
Stjórn félagsins lítur (fyrst um sinn) á þetta sem tilraun og hvetur félagsmenn til þess að taka þátt í henni með því að skrá sig í hópinn.
Umsjón með þessu verkefni hefur Kristinn Valdimarsson: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Vinsamlegast snúið ykkur til hans með spurningar og ábendingar.
Síðast uppfært ( Þriðjudagur, 10. janúar 2012 00:07 )


