Umsagnir um lagafrumvörp
Stjórn félagsins óskaði nýlega eftir því við Alþingi að fá að veita umsagnir um þau lagafrumvörp sem varða stjórnsýsluna. Erindinu var vel tekið og nú fáum við tilkynningar um einstök frumvörp á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Stjórnin hefur jafnframt rætt þann möguleika að stofna um þetta faghópa, t.d. með þátttöku lögfræðinga og ýmissa sérfræðinga á sviði einstakra stjórnsýslumála.
Hugmyndin er að reyna að koma með ábendingar um fagleg mál en sneiða frekar hjá hápólitískum málum. Áhugavert væri að heyra frá félagsmönnum hvaða möguleika þeir sjá í tengslum við þessa tilraun.


