Lög Félags stjórnsýslufræðinga


1. gr.
Félagið heitir Félag stjórnsýslufræðinga og er fagfélag háskólamenntaðs fólks á sviði stjórnsýslufræða. Það hefur aðsetur sitt í Reykjavík.

2. gr.
Hlutverk félagsins er:
1. Að stuðla að því að félagsmenn og aðrir áhugamenn um stjórnsýslufræði njóti fræðslu og    endurmenntunar.
2. Að kynna menntun félagsmanna og efla ímynd þeirra.
3. Að efla kynni og tengsl félagsmanna.

3. gr.
Félagsmaður getur hver sá orðið, sem lokið  hefur meistaraprófi frá viðurkenndum háskóla í stjórnsýslufræðum. Nemendur í meistaranámi í stjórnsýslufræðum geta verið aukafélagar þar til þeir ljúka námi.
Stjórn félagsins tekur ákvörðun um inntöku nýrra félagsmanna.
Stjórn félagsins er heimilt að veita inntöku sem aukafélögum öðrum en þeim sem að ofan greinir. Aukafélagar hafa rétt til setu á almennum félagsfundum en eru án atkvæðisréttar.

4. gr.
Stjórn félagsins getur kjörið heiðursfélaga menn, sem leyst hafa af hendi mikilsverð störf á sviði stjórnsýslu eða unnið sérlega mikil störf fyrir félagið.

5. gr.
Stjórn félagsins getur vikið manni úr félaginu, ef henni þykja efni standa til, en borið getur hann mál sitt undir almennan félagsfund.

6. gr.
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins. Skal hann haldinn ekki síðar en í maí ár hvert. Aðalfund skal boða skriflega með bréfi eða tölvupósti með 7 daga fyrirvara hið skemmsta. Aðalfundur er lögmætur sé löglega til hans boðað og ræður afl atkvæða úrslitum mála nema annars sé getið í lögum þessum. Atkvæðisrétt hafa félagsmenn sem skuldlausir eru við félagið.

7. gr.
Dagskrá aðalfundar skal vera eftirfarandi:
1. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu starfsári
2. Ársreikningur félagsins
3. Lagabreytingar.
4. Kosning stjórnar.
5. Kosning endurskoðenda.
6. Önnur mál.



8. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð fimm mönnum og tveimur til vara. Kosið er til tveggja ára í senn. Aðalmenn skulu kosnir annað árið og varamenn hitt árið. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.

Kosningar skulu vera skriflegar sé þess óskað.

9. gr.
Á aðalfundi skal kjósa tvo endurskoðendur og skal kosning fara fram skriflega, sé þess óskað.

10. gr.
Stjórn félagsins ræður málefnum félagsins með þeim takmörkunum, sem lög þessi setja. Hún tekur nánari ákvarðanir um starfsemi félagsins og ber ábyrgð á fjárreiðum þess. Hún skuldbindur félagið gagnvart öðrum aðilum og er undirskrift formanns og gjaldkera nægileg til þess.

Stjórn félagsins ákveður félagsgjöld hverju sinni í upphafi starfsárs og skulu þau greidd eigi síðar en 1. nóvember ár hvert.

Gerðir stjórnarinnar skulu bókaðar.

11. gr.
Reikningsár félagsins er frá 1. apríl til 31. mars. Rekstrarafgangi af starfsemi félagsins skal varið í samræmi við hlutverk félagsins, sbr. 2.gr.

12. gr.
Lögum þessum má breyta á aðalfundi félagsins og skal í fundarboði geta þeirra breytinga sem bera á upp. Til þess að lagabreytingar nái fram að ganga þarf 2/3 greiddra atkvæða.

13. gr.
Ákvörðun um slit félagsins skal tekin á stjórnarfundi með einföldum meirihluta og renna þá eignir þess til Félagsvísindadeildar Háskóla Íslands.



Samþykkt á aðalfundi Félags stjórnsýslufræðinga þann 31. maí 2007